svaðilförin mikla í bústaðinn

jæja helgin okkar sólrúnar sem átti að vera afslöppunar helgi og voða róleg og góð endaði örvísi en ætlað var.planið var að leggja af stað úr bænum fyrir klukkan 3 en þar sem að það tók aðeins lengri tíma að versla en áætlað var og svo þegar að við vorum búnar að því og ætluðum að drífa okkur heim að pakka niður þá hringir gilsi og tilkynnir okkur það að heiðin sé lokuð. og við fengum nett sjokk en fórum að sækja krakkana mína í leikskólann og vonuðum bara að heiðin væri opnuð fljótlega aftur. svo fórum við krakkarnir heim að pakka og svona og ég ákvað að hringja í vegagerðina og reyna að fá að vita hvenær heiðin myndi opna aftur og þá segjir konan að það þrengslin séu opin þannig að við ákváðum að drífa okkur af stað.vorum farnar úr bænum um 5 leitið. reyndar komið brjálað veður en við létum okkur hafa það. vorum svo komnar á selfoss um 7 leitið. drifum okkur svo inná flúðir, en þegar að við vorum að beygja inná aflegjaran inná flúðir þá runnum við næstum út af, en það bjargaðist sem betur fer,svo var ágætis veður þegar að við vorum komnar hjá flúðum en svo þegar að við vorum að verða komnar í sveitina  sem að krakkarnir fara í þá runnum við útaf veginum enda glæra hálka og rigning í þokkabót og komið brjálað rok. við hringdum í gugga og hann fékk mann á gröfu til að koma og draga okkur upp og það tókst á endanum. en svo þegar að við vorum að reyna að komast til baka þá rann guggi á okkur og braut hliðar spegillin í mask og rispaði hurðina farþegamegin við fengum smá sjokk við þetta allt saman en svo komum við krökkunum frá okkur og ætluðum beint upp í bústað. en þá var okkur sagt það að það væri varla fært upp í bústað. en okkur var bent á það að við gætum kannski fengið björgunar sveitina til að koma og hjálpa okkur ef að við myndum lenda í meiri vanda, en við ákváðum að reyna að fara á einum bíll og kom gilsi yfir í bílinn til okkar og ætlaði að skilja sinn eftir hjá búðinni. og brunuðum svo af stað í bústaðinn. en þegar að þangað var komið þá sáum við að brekkan upp var bara glærahálka en ætluðum að reyna að komast upp en það endaði ekki betur en það að við runnum heilan hring í brekkunni. og komumst ekki upp. ákváðum svo að fara inná flúðir og sækja bílinn hans gilsa og reyna að komast á honum fyrst og hann var á nagladekkjum.en þegar að inná flúðir var komið þá fattaði gilsi það að hann hafði læst lyklana inní bíll.eftir að hafa talað við lögregluna sem benti honum bara á að brjóta rúðuna, sagði að það væri það eins sem að hægt væri að gera. ákváðum við að kíkja til vinar pabba sólrúnar og gá hvort að hann gæti nokkuð hjálpað. hann kom svo með okkur að bílnum og eftir að hafa reynt í smá tíma að opna þá kom annar heima maður að hjálpa okkur .og sátum við sólrún inní bíl og hlógum mikið af þessu en gilsa fannst þetta ekkert fyndið og gaf okkur bara nokkur fuck merki. en svo á endanum tókst þeim næstum á sama tíma að opna bílinn. eftir að hafa þakkað vel fyrir hjálpin keyrðum við að stað uppí bústað á báðum bílunum ég og sólrún ætluðum bara að skilja hennar bill eftir fyrir neðan brekkuna og fara svo upp með gilsa ef að hann kæmist upp. en svo ákvað sólrún að reyna að fara bara á fullri ferð upp brekkuna og það tókst en runnum svo þegar upp var komið og enduðum á einhverju bilastæði og áttum eftir að finna út í hvaða bústað við ættum að vera í eftir að hafa athugað númerið næstu 2 bústöðum þá komust viða ð því að við vorum bara fyrir framan réttan bústað. og þá kom að því að koma öllu draslinu upp en það var sko ekki auðvelt þar sem að bústaðurinn var hátt uppi og tröppur upp sem voru á kafi í snjó og duttum við nokkrum sinnum á rassinn við að reyna að komast upp. en þetta tókst allt á endanum og vorum við fegin að vera loksins komin alla leið tók bara 5 tíma að komast á leiðar enda.
annars var helgin mjög góð og ég segji kannski betur frá henni á morgun bæ í bili

jóla bara allveg að koma

og já mig hlakkar ekki til jólana, er búin að klára að baka og svona. það er fullt sem er eftir og íbúðin er í rúst ég á bara enga orku eftir til að klára að þrífa eftir þessi veikindi sem að eru búin að vera í gangi hérna. en þau eru loksins að verða búin. svo að ég get farið að setja þau aftur í leikskólan sem betur fer. en það er sko ekki auðvelt að vera að baka og taka til með þau hérna hlaupandi í kringum mig. enda voru það nokkrar plötur sem brunnu hehe.

en já victoria var að byrja á sýklalyfjum í dag, hún fór með mömmu uppá læknavakt og þá kom í ljós að hún var komin með bullandi eyrnabólgu báðum megin voða gaman, ekki var ég búin að gera ráð fyrir þessu í fjármálunum svo að jólatrés peningarnir fóru í lyfja kostnað. svo að við höfum ekkert jólatré um jólin nema að ég nái að redda einhverju tréi. hvernig sem að ég fer að því.

svo hlakkar mig ekkert mikið til jólana verð hérna ein með krakkana og það á eftir að vera stríð hérna á milli okkar. ef þetta verður eins og fyrra þá eiga þau ekki eftir að geta borðað og vilja bara pona pakkana en ég verð bara að vera leiðinleg og stoppa þau, ég vil fá að borða minn jólamat í rólegheitum, enda skilja þau varla enþá um hvað jólin snúast , þau vita það bara að þau fá fullt af pökkum og  það er mest spennandi hjá þeim.  þau eru búin að vera heppin með jólasveininn þessa dagana en í kvöld breyttist það þá kemur kartaflan í skóin enda eiga þau ekki annað skilið eftir þessa hegðun í dag hjá þeim. það verður gaman að sjá svipin á þeim á morgun, hehe.


hugsunarleysi

í dag fékk ég sms sem mér var mjög brugðið við að lesa. í því stóð "þú ert tík þetta er ##### ég þoli þig ekki". þetta átti að hafa komið frá vinkonu minni. svo þegar að ég talaði við hana þá sagi hún að vinkona hennar hefði sent þetta, og þetta hefði bara verið djók þar sem að þær voru einhvað að fíflast.

þeim fannst þetta fyndið en ekki mér, mér fannst þetta vera hugsunar leysi að senda svona sms þegar að þú veist ekki hvernig hinn aðildin myndi taka þessu. ég er líka að spá hvort að það hafi ekkert verið að hugsa um mínar tilfingra og hvað mér fyndist um þetta. er ég ekki meira virði í þeirra augum en þetta.  það má eiginlega segja að það var þeirra heppni að ég var í dauðuskapi í dag og skítsama um allt þessa vegna skipti þetta mig ekki miklu máli en særir samt.  hefði ég verið pirruð svona eins og ég er venjulega þá hefði ég örruglega orðið brjáluð. 

en mig langar bara spyrja ykkur að einu stelpur, hver var tilgangurinn með þessu og er ég svona lítils virði í ykkar augum að  ykkur finnst þetta í lagi?


vinkonur taka 2

 í færsluni sem að ég seti hérna í gær vantai hluta , veit ekki hvernig stendur á því en svona átti færslan að vera.

 

ég hef mikið verið að spá í núna hvað sannar vinkonur séu. hvað gerir þær að raunverulegum vinkonum. myndi maður sætta sig við að vinkonur manns séu að baktala mann og koma ekki fram við mann að virðingu. ég var sjálf að átta mig á því að ég á bara 2 vinkonur sem að ég get talað við um allt og þær styðja mig og hjálpa og dæma mig ekki eins og aðrar vinkonur mínar gera ef vinkonur er hægt að kalla. ég hef átt í miklum andlegur vandræðum núna uppá síðkastið enda lífið ekki gengið eins og það ætti að gera og á þessum tíma þá hef ég fundið hvernig vinkonur mínar eru hverjar forðast mig til að þurfa ekki að hlusta á mig grenja og hverjar koma til mín og bjóða mér öxl til að gráta á.og sumar vinkonur eru bara mest að nota mann, ég á líka svoleiðis vinkonur stundum er maður nógu góður til að tala við þær og stundum ekki, þær vilja helst tala við mann þegar að þeim hentar og þegar þeim vantar einhvað og eða vantar hjálp við einhvað.  svoleiðis vinkonur þarf engin á að halda.
svo á ég líka eina vinkonu sem að ég get varla kallað vinkonu vegna þess að hún er einhvað meir en það, við erum alltof oft að hugsa það sama samt langar mig stundum bara að taka hana og drepa hana, vegna þess hvernig hún lætur stundum, held ég sé að verða mamma hennar frekar heldur en vinkona hehe. við erum búnar að þekkjast í 7 ár núna töluðum reyndar ekki saman í allt of langan tíma á meðan að ég var með mínum fyrrverandi, enda taldi hann hana ekki góðan félagskap. gæti haft slæm áhrif á engil mig sko hehe. en svo byrjuðum við að tala saman aftur haustið 2005. hittumst fyrir utan mæðrastyrkst nefnd. og síðan þá hefur samband okkar verið stöðugt enda á ég henni margt að þakka og hún hefur alltaf hjálpað mér eins og hún getur með krakkana og annað. enda á ég aldrei eftir að getað borga þessa hjálp til baka. og á ég ekki til nógu mörg orð til að lýsa þakklæti mínu til hennar. ég vona bara að hún verði í lífi mínu og barnanna eins lengi og hægt er. enda er hún eins og önnur móðir barnanna minna. og dóttir mín elskar hana svo mikið út af því að þær elska báðar bleikan svo mikið. (já guðrún ég á ennþá eftir að berja þig fyrir að koma dóttur minni inná bleikanAngry)en samt elska ég þig ástin mín hehe. og takk fyrir allt sem að þú hefur gert fyrir okkur í gegnum tíðina.

og svo er það hún sigrún, held að ég þurfi  ekki að segja meir lol.

 og svo er það hún tobba traust vinkona sem hægt er að treysta á.

svo að hef bara þetta að segja takk tobba og sigrún fyrir að vera vinkonur sem hægt er að treysta á. 


vinkonur

ég hef mikið verið að spá í núna hvað sannar vinkonur séu. hvað gerir þær að raunverulegum vinkonum. myndi maður sætta sig við að vinkonur manns séu að baktala mann og koma ekki fram við mann að virðingu. ég var sjálf að átta mig á því að ég á bara 2 vinkonur sem að ég get talað við um allt og þær styðja mig og hjálpa og dæma mig ekki eins og aðrar vinkonur mínar gera ef vinkonur er hægt að kalla. ég hef átt í miklum andlegur vandræðum núna uppá síðkastið enda lífið ekki gengið eins og það ætti að gera og á þessum tíma þá hef ég fundið hvernig vinkonur mínar eru hverjar forðast mig til að þurfa ekki að hlusta á mig grenja og hverjar koma til mín og bjóða mér öxl til að gráta á.

og sumar vinkonur eru bara mest að nota mann, ég á líka svoleiðis vinkonur stundum er maður nógu góður til að tala við þær og stundum ekki, þær vilja helst tala við mann þegar að þeim hentar og þegar þeim vantar einhvað og eða vantar hjálp við einhvað.  svoleiðis vinkonur þarf engin á að halda. 

svo að ég hef bara þetta segja  sigrún og tobba takk fyrir að vinkonur sem styðja mig og hjálpa mér  InLoveKissing


ÉG VAR REKIN

já ég var sko rekin, ég sem hélt að ég væri að standa mig svo vel en nei þeim fannst annað,  ég veit ekki alveg hvernig ég á að taka þessu held að ég haldi starfinu þangað til að það verður búið að finna staðgengil fyrir mig. hvernig sem að þeim tekst það. ég er búin að reyna að vera  í þessari vinnu í 5 ár núna og það verður bara erfiðara með hverju árinu sem líður, en það þýðir sko ekki fyrir þau að reyna að endurráða mig ónei, þá verða þau að redda mér launa hækkun.

en svona um hvernig þetta allt byrjaði, þá voru þau ekki sátt við kvöldmatinn og voru einhvað að kvarta, þau vildu fá Disney pasta en ekki venjulegt og það varð smá rifrildi úr þessu og ég bara gaf mig ekki ætlaði sko ekki að fara að elda sér pasta handa þeim. hafði ekki alveg tíma til þess þar sem að ég var að klára að bóna gólfið á 2 herbergjum. og þá bara báðu þau mig um að vera ekki mamma sín lengur og ég bara ha. victoria bað mig um að finna einhvern annan til að elda handa þeim næst ég væri bara ekki að standa mig, ég á ekki að vera að þrífa ég á bara að elda góðan mat handa þeim. 

svo að núna er ég atvinnulaus og börnin mín heimilislaus, þau eru reyndar ekki að samþykkja það. ég á flytja út en ég bara benti þeim á það að það væri ég sem að borgaði leiguna svo að þau gætu farið en þetta leysist vonandi í kvöld. 


ég hata jólaskraut

já ég hata það. skil ekki afhverju ég er að setja það upp en jú hvað gerir maður ekki fyrir börnin sín. þau halda reyndar að jólin séu að koma á morgun. en það er annað mál. ég er núna búin að vera að reyna að ná í sundur seríum og fara í gegnum þetta drasl sem betur fer á ég lítið af skrauti en verð samt greinilega að bæta aðeins í það í ár ef að fjárhagurinn leyfir það. verð víst að kaupa jólatré hélt reyndar að ég myndi sleppa við það í en svo er víst ekki fyrst og að börnin verða heima í ár. en mér er allaveg ekki farið að hlakka til jólana enda var ég að leggja saman og hérna þarf jóla sveinnin að kaupa 39 skógjafir. hvorki meira né minna spurning um hvort að hann fari ekki á hausin. en það þarf allaveg kraftaverk til að maður nái að halda almenileg jól fyrir þann litla pening sem að ég hef eftir að það er búið að borga reikninga. en sem betur fer á ég skilningsríka fjölskyldu sem að veit það að ég hef ekki efni á að kaupa jólagjafir svo að smá teikning frá krökkunum dugar frá okkur. en jæja best að koma þessu dóti á sinn stað.

listinn

jæja ég varð að gera eins og hún guðrún mín og láta skrá mig á listan hjá skaparanum. og ég bara vona að ég komist þangað inn líka hehe.

óréttlæti

á mánudaginn fékk ég símtal frá vinkonu minni sem að ég trúði ekki allveg strax. hún sagði mér að 5 vinir okkar hefðu verið rekna og hent út á götuna. peninga lausir og alls lausir og áttu ekki að fá sín laun borguð.

en það sem varð víst til þess að þeirr voru reknir var að þeir voru seinnir að koma sér af stað í vinnu á sunnudeginum enda ekki nema von þar sem að þeir voru að halda uppá afmæli hjá einum þeira. og verkið var á eftir áætlun. samt ekki skrítið þar sem að það er ekki hægt að treysta á íslenskt veður alltaf og vinnan gengur oft hægt í verra veðri.

þegar að ég hitti strákana á mánudagskvöldið þá voru þeir allveg í kásu vissu ekkert hvernig þeir ættu að komast heim eða hvar þeir ættu að búa en húsnæðinu var ekkert mál að redda en annað með peningin en með miklu tuði og veseni tóks að fá þetta fólk til að borga þeim það sem þeir áttu inni en reyndar þá fengu þeir bara 26.000 á mann og átti það að vera fyrir 2 mánaða vinnu. og svo með meira tuði og veseni þá fengu þeir meiri pening sem dugði þeim fyrir miðanum heim og smá mat þangað til að þeir færu. en samt vilja þeir auðvitað fá allt sem að þeir eiga inni hjá þeim borgað. held að hver sem er skilji það.

ekki gaman að snúa aftur heim og eiga ekki neitt þegar að þeir áttu von á að eiga allavega einhvern pening. 

þessir strákar eru frá litháen og eru bestu skinn allaveg þori ég hiklaust að hleypa þeim inná mitt heimili en þeir eru reyndar ekki hérna núna þar sem að börnin eru heima.  enda býðu búðin mín ekki uppá mikið plás fyrir fleiri en okkur 4. en núna eru þeir heima hjá vinkonu minni og býða eftir að komast heim og eru að reyna að fá sín laun borguð.

en svo lentu þeir í því fyrir um það bill 45 min síðan að þeim var hreinlega hótað og reyndar vinkonu minni líka sem hefur ekkert gert eða sagt  nema að reyna að hjálpa þeim.þeim var bent á það ef að þau kæmu aftur nálægt byggingar svæðinu þá myndi eigandin sem er þjóðþekktur einstaklingur sjá til þess að einhvað kæmi fyrir þau. ég ætla ekki nafngreina þennan mann strax en hika ekki við að gera það ef þess þarf. vinkona mín er reyndar búin að senda honum email og spyrja út í það hvort að þetta sé satt sem henni var hótað hvort að hann legji virkilega nafn sitt við svona hátarlag eina sem að strákarnir vilja er að fá sín laun og ekkert annað. þeir vilja ekki vera með nein illindi eða neitt. ef að þetta væru menn sem að væru búnir að vera að gera einhvað af sér hérna á landi þá myndi ég allveg skilja þetta næstum því en þessir menn komu bara hingað til að vinna og ekkert annað. þeir eru ekki hluti af þessu útlendingum eru að ræna eða nauðga þetta eru hin bestu skinn. enda kem ég til með að sakna þeirra en þeir eiga ekki von á því að koma til íslands aftur enda er áhugin ekki mikil eins og er og skil ég það mjög vel. en það verður gaman að sjá hvað þessi maður hefur að segja um þessar hótanir sem eiga að koma frá honum.


Um bloggið

amo te muito

Höfundur

guðríður nanna magnúsdóttir
guðríður nanna magnúsdóttir
þessi manneskja er örstutt frá geðveiki
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 182

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband